jæja, þá er rúmlega vika síðan ég kom aftur til kaupmannahafnar....það var alltof gott og gaman að koma heim...fattaði eiginlega ekki fyrren ég var komin til íslands hvað ég saknaði fólksins mikið!!!!!!!! en þar sem allir sem lesa bloggið mitt voru í daglegu sambandi við mig meðan ég var heima þá nenni ég nú ekki að segja frá því hvað ég gerði í fríinu heima!!!! ætla samt einungis að nefna það hvað ég saknaði þess að fá almennilegan heimatilbúinn mat a la ma og pa!!!!! enda er búin að vera á fullu núna í uppskriftarbókum og á netinu að reyna að finna e-ð nýtt til að elda..það má samt ekki vera of flókið, því eins og flestir sem þekkja mig vita þá er ég ekkert rosalega afkastamikil þegar kemur að eldhúsverkunum!!!!!!
en nóg um það!!!!;) ég kom semsagt 'heim' fyrir u.þ.b. viku og það er sko alveg nóg búið að vera í gangi...stelpugengið mitt úr skólanum var nú yndislegt að taka á móti mér uppá flugvöll...það var geðveikt næs, að hafa e-n að bíða eftir sér;) og auðvitað byrjuðum við á því að fara á starbucks!! og það var sko einn mocha frappucino sem var keyptur!!!! er ekki sátt með að eini starbucks hérna í köben sé uppá flugvelli...nenni nú ekki að fara alla leið þangað bara til að fá mér einn kaffi!!!! en það var alla vega geðveikt næst....
svo tók nú alvaran við...eftir þriggja vikna letilíf þurfti ég sko að drattast á lappir fyrir allar aldir til að mæta í vinnuna klukkan sjö um morgunin tvo daga í röð!!!! kraftur í manni!!! en svo tók letilífið bara aftur við...skellti mér nefnilega uppí sumarbústað í 4 daga með frönskugenginu....ætlunin var að læra saman undir próf sem við erum að fara í í endaðan janúar..en það var nú lítið um það!!! kíktum reyndar aðeins í bækurnar og vorum svaka duglegar á sunnudeginum...en svo vorum við bara eiginlega ekkert að nenna þessu lengur að það þýddi náttúrulega bara chill fyrir framan sjónvarpið og að spila...svo fundum við fótboltaspil út í skúr, sem vakti þvílíka lukku hjá okkur því við erum orðnar algjörlega háðar fótboltaspilinu á barnum niðrí skóla...það er sko venjan að fara á hverjum degi eftir skóla niður á barinn og spila nokkra leiki!!!!!
en svo er bara leti og leiðindi búið að taka við....hef ekkert fengið neina aukavinnu þannig að ég hef ekki haft neitt að gera í þessari viku en að taka til og e-ð rusl!!! og þar sem mér finnst ekkert voðalega gaman að taka til þá er það náttúrulega búið að taka tvo daga að taka til í herberginu mínu!!!! þarf alltaf að taka mér pásur nefnilega með reglulegu millibili!!!!
en svo gerði ég stórkaup í dag!!! keypti mér dvd spilara...sem spilar öll kerfin!!! er að verða brjáluð á því að ég geti ekki horft á allt dvd-ið mitt því helvítis tölvan mín spilar bara evrópskt kerfi!!!! og þar sem ég tók náttúrulega góðærir gamla og góða með opnum örmum þá á ég þó nokkuð a ðdvd myndum og sjónvarpsseríum sem ég keypti í ameríkunni!!!! en núna vantar mig bara sjónvarpið!!!!!! ég er reyndar búin að redda mér sjónvarpi....er bara að bíða eftir að geta fengið það!!!! björk og miette kærastan hennar eiga nefnilega eitt auka sjónvarp sem ég má fá þegar þær fá nýja sjónvarpið sitt....og þær ætla meira að segja að vera svo góðar að gefa mér það!!!! þannig að ég fæ bara ókeypis sjónvarp....gerist ekki betra í kreppunni!!!! þannig að ég var að pæla í að nota peninginn sem ég ætlaði að nota í sjónvarpið í að kaupa mér plötuspilara...fann nefnilega hræódýran plötuspilara í bilka og er að pæla í að splæsa bara einum á mig...þannig að nú get ég farið að byrja að safna vínylplötum...finnst það miklu meira töff heldur en að eiga geislaspilara!!!!!;) en núna ætla ég að fara að fá mér að borða..er orðin helvíti svöng!!! þangað til næst....bleeeees
15. janúar 2009 klukkan 18:56
Steinunn Björk Bragadóttir 1 athugasemd
jæja..þá er bara einn dagur í mig!!!!!!! á sama tíma á morgun verð ég eflaust komin uppá flugvöll búin að fá mér mocha frappucino á starbucks og að deyja úr spenningi yfir því að vera á leiðinni heim!!!! en núna í augnablikinu sit ég uppí skóla að reyna að klára þetta helvítis verkefni mitt sem er búið að gera mig gráhærða...þannig að ef ég lít út fyrir að hafa elst óeðlilega mikið á þessu hálfa ári sem ég er búin að vera í burtu, þá vitiði útaf hverju...ákvað að taka mér smá pásu til að deila þessu með ykkur hérna á veraldarvefnum....hef samt alltof mikið sem ég þarf að gera í dag...vantar alveg 10 tíma í viðbót í sólarhringinn!!! því eins og þið sem þekkið mig vitið, þá bíð ég fram á síðustu sekúndu til að gera hlutina....þarf að fara í bankann, þarf að fara í eina búð, þarf að taka til í herberginu mínu og þrífa smá heima, og þarf svo að pakka niður...er ekki einu sinni byrjuð á því...og ég þarf að gera þetta allt eftir klukkan þrjú, því ég ætla sko að nýta mér hverja einustu mínútu til klukkan þrjú til að klára þetta verkefni!!!!!þannig að það lítur allt út fyrir að það sé önnur nótt með aðeins 3 tíma svefni í vændum hjá mér....ég held ég verði bara sofandi í öllu fríinu mínu heima á íslandi!!!!! en núna ætla ég að fara aftur í lærdóminn... sjáumst á morgun!!!!!!!!;) bleeees
17. desember 2008 klukkan 10:21
Steinunn Björk Bragadóttir 1 athugasemd
Jæja, þá er að koma að viðburði ársins!!!!! Bara 6 dagar í að ég komi heim í jólafrí!!!!!;) get ekki beðið....er ekki beinlínis búin að vera í miklu jólaskapi síðustu dagana samt...kemst ekkert annað að en vinna og lærdómur...er einmitt núna að taka mér smá pásu frá lærdómnum....og ákvað að henda inn einni jólaspenningsbloggfærslu.....og ég er svo corny að ég ákvað að finna e-a íslenska útvarpstöð til að hlusta á svona til að koma mér í jólaskapið..því ég er sko ekki búin að gleyma því hvað við íslendingar missum okkur í jólaundirbúningnum...er að hlusta á léttbylgjuna núna...ég vil reyndar benda á það að undir venjulegum kringumstæðum myndi ég aldrei hlusta á léttbylgjuna þar sem ég er ekki mikill aðdáandi íslenskra dægurtónlistar eins og stebba hilmars og friðrik ómars...en þar sem þeir eru nú duglegir í að spila jólalögin í desember þá ákvað ég að gera eina undantekningu!!!!!;) eru reyndar að spila lay low núna...þannig að léttbylgjan er nú ekki alslæm!!!!
en fyrir utan það að ég sé að reyna að koma mér í smá jólaskap, þá er ég í total panikki yfir þessu verkefni sem ég er að vinna í núna fyrir skólann...á 6-9 síður um greiningu á frönsku ljóði...og þar sem ljóðagreining hefur nú aldrei verið mín sterkasta hlið, hvað þá á frönsku, þá getiði rétt ímyndað ykkur hversu stressuð ég er orðin núna....er reyndar að verða búin með eina síðu!!!!! þannig að ég á bara 5-8 síður eftir!!!!! alltaf hægt að líta á björtu hliðarnar......
en svo var ég líka að skoða jólabæklinginn frá kringlunni núna rétt áðan....og ég get nú ekki séð að það sé e-r brjáluð fjármálakreppa þarna heima á íslandi...alla vega ekki miðað við gjafirnar sem eru í þessum bæklingi....demantshringur á 200þús...hrærivél á 75þús....ég er alla vega búin að finna eina gjöf....sá þessa mökkljótu mokkakápu frá e-i búð sem heitir bison..á aðeins 160þús....þannig að mamma...það verður kannski enginn kalkúnn um áramótin því mig langar sko í hana í jólagjöf!!!!!!!!!!!!!!!´
ég vil sko ekkert ódýrara eða íburðaminna en mokkakápu á 160þús!!!!!
ég held að eina manneskjan sem á eftir að kaupa jólagjafirnar í kringlunni sé hann blessaður jón ásgeir og dabbi kóngur...eru þeir ekki þeir einu sem eiga ennþá pening!?!!?!?!?!!? ég bara spyr??
en annars verð ég bara ánægð ef ég fæ að hitta sem flesta sem mér þykir vænt um núna um jólin....það skemmir reyndar ekki fyrir ef ég fengi kalkún um áramótin....þannig að kannski ætti ég bara að sleppa mokkakápunni!!!!!
en mamma...mig langar samt ennþá að fara í árlegu jólaverlsunarferðina okkar í smáralindina og kringluna sem tekur 10 tíma....þrátt fyrir að ég ætli mér ekki að kaupa neitt!!!!!!! bara gaman að halda í hefðirnar...vona bara að það verði ekki eins og um síðustu jól..þar sem við sátum fastar í bílnum við álverið í 1 og hálfan tíma útaf því að það var bílslys!!!!!
annars keypti ég mér jólakjól í dag...á heilar 200 danskar krónur...og eyrnalokka á heilar 30 danskar krónur....þannig að það eru alla vega ennþá til búðir hérna í danmörku þar sem maður getur keypt sér e-ð án þess að þurfa að selja úr sér annað nýrað til að hafa efni á því!!!!!!!
en núna verð ég að halda áfram að læra...svo ég verði nú búin með þetta áður en ég fer heim!!!!! nenni sko ekki að vera með e-ð helvítis verkefni á bakinu á íslandi...neihei!!!!!!
en þangað til næst
bleeeeeeeeeeeeeeees... Nánar
12. desember 2008 klukkan 22:13
Steinunn Björk Bragadóttir 2 athugasemdir
Bara svona til að láta ykkur vita, eftir nákvæmlega 14 daga, uppá sekúndu, verð ég við það að lenda á kalda gjaldþrota íslandi!!!!!!!!!!! og ég get ekki beðið!!! sjitt mar...ég næ varla að hugsa um neitt annað þessa dagana...það var einmitt ástæðan fyrir þv´æi að ég samþykkti að vinna næstum alla næstu viku...bæði til að fá nú smá aukapening og svo bara til að tími líði hraðar...mér líður eins og litlum krakka sem er að bíða eftir því hvort að jólasveininn hafi nú fengið bréfið hans og hvort hann fái það sem hann óskaði sér í jólagjöf!!!!! en mér má alveg líða eins og litlum krakka!! hef ekki verið heima í hálft ár!!! og ég hef ekki keyrt bíl í hálft ár.....spurning hvort ég muni ennþá hvernig það er að keyra bíl!!!! efast um að ég fái að keyra mömmu og pabba bíl eftir þessa yfirlýsingu!!! annars má ég tæknilega séð ekki keyra bíl, hvort sem er..ég á ekkert ökuskírteini...helvítis tussupussinn sem stal veskinu mínu í sumar situr örugglega enn þann dag í dag með ökuskírteinið mitt í höndunum, pissandi í sig af hlátri yfir vibbamyndinni af mér á því!!!!!!!!!!!!!! ég get alla vega litið á björtu hliðarnar...þá er sú mynd alla vega horfin!!ég vil bara ráðleggja ykkur frá því að lita hárið á ykkur svart þegar þið eruð náttúrulega ljóshærð og húðgerð rauðhærðrar manneskju!!!! það kemur ekkert rosalega fallega út.....svona eins og þið sem þekktuð mig á þessu svarthærða tímabili mínu tóku eflaust eftir!!!!!!!!! en annars er ekkert voða mikið að frétta héðan....fór síðasta sunnudag að sjá þegar kveikt var á jólatrénu á ráðhústorginu....og ég sko sagt ykkur það að það var engin lúðrasveit tónlistarskóla reykjanesbæjar eða karlasöngsveitin víkingarnir á svæðinu!!!! og það var sko ekki afmælisbarn dagsins sem fékk að ýta á takkann til að kveikja á jólatrénu....neinei..það var sko jólasveininn mættur á svæðið í fullum skrúða...á slökkviliðsbíl nota bene....og svo klifraði jólasveininn upp slökkviliðsbílsstigann að toppnum á trénu...ég vorkenndi nú greyinu pínu...ég hefði alla vega verið pínu lofthrædd...en ekki nóg með það að það þurfti slökkviliðsbíl til að hjálpa honum...dregur hann ekki upp svona handblys (svona eins og maður er með á áramótunum) og kveikir á því..og þá byrja e-r brjálæðislegar sprengingar og læti og eldurinn frá blysinu fer yfir í e-a stjörnu sem er á jólatrénu..og það kviknar í henni líka og það koma meiri sprengingar og læti og þá loksins kviknar á ljósunum á jólatrénu!!!!!!!!!!!!!! það var fyrst eftir þessi læti sem ég sá tilganginn með slökkviliðsbílunum...hefði nú verið frekar óhentugt ef blessaður jólasveininn hefði nú kveikt í 21 metra háa jólatrénu.....en maður sá alla vega að danirnir eru ekkert of illa staddir þegar kemur að fjármálakreppunni þegar það á að fara að kveikja á jólatrénu!!!! ætli reykjavíkurborg hafi haft efni á að kaupa jólatré!?!?! kannski ráðamenn borgarinnar hafi bara tekið uppá því að kaupa gervitré...það er miklu hagstæðara...hægt að nota það aftur og aftur!!!;) annars er allt orðið voða jólalegt hérna...kom meira að segja smá snjór í gær!!! en ég get sko sagt það að ég sakna snjósins nákvæmlega ekki neitt!!!!! gleymi sko aldrei síðasta vetri..þegar bíllinn minn sat fastur mörgum sinnum í bílkeyrslunni og reykjanesbrautinni lokað þrisvar sinnum á tveimur mánuðum!!!! ekkert annað en rugl....ég hef einmitt oft þurft að segja liðinu hérna að það sé bara heppið með þennan litla snjó hérna, svona þegar þau fara að kvarta yfir snjónum og svona!!! á meðan maður kemst á milli staða án þess að eiga á hættu á að festast úta á miðri götu, þá held ég að þetta sé bara alltí lagi!!!!! en núna ætla ég að fara að hætta þessu....þetta er orðið ansi langt blogg um nákvæmlega ekki neitt!!!!! sjáumst eftir tvær vikur;) bleeeeeeees
04. desember 2008 klukkan 14:35
Steinunn Björk Bragadóttir 2 athugasemdir
smá viðbót við síðustu bloggfærslu...þetta er fyrir þá sem eru að forvitnast um hvenær ég kem heim og hversu lengi ég verð heima;) ég kem heim 18.des og fer aftur út 6.janúar...þannig að ég verð í næstum þrjár vikur á klakanum.....þið getið byrjað að panta tíma hjá ritaranum mínum frá og með deginum í dag!!!!!;)
bleees í bili
18. nóvember 2008 klukkan 23:18
Steinunn Björk Bragadóttir 2 athugasemdir
jæja, ætli það sé ekki kominn tími á eins og eina færslu hérna á veraldarvefnum..er búin að fá nokkur komment þar sem verið er að reka á eftir mér!!!;) gott að vita að það sé alla vega e-r sem nennir að lesa þetta blogg mitt!!!!! en úff...hvar á ég að byrja...það er meira en mánuður síðan ég skrifaði e-ð síðast!!! en þar sem ég nenni ekki að reyna að rifja allt sem er búið að gerast á þessum mánuði þá skal bara upplýsa ykkur um það nýjasta.... Ég og tvær stelpur sem eru með mér í frönsku erum að pæla í að finna okkur íbúð saman til að leigja.....er ekki alveg að hafa efni á þessu skítapleisi sem ég er í núna....já, ég segi skítapleis og ég skal sko segja ykkur af hverju....í fyrsta lagi er þetta uppá fimmtu hæð með engri lyftu...og þar sem ég er nú ekki þekkt fyrir að vera neitt svakalega fyrir það að hafa of mikið fyrir hlutunum, þá finnst mér ekki gaman að þurfa að klöngrast upp fimm hæðir með skólatöskuna, sem er nota bene fokk þung, eða eftir vinnu, þegar maður er búin að vera bókstaflega standani og labbandi og lyftandi kössum og drasli í 9 tíma!!!! svo virkar ekki ofninn inní herberginu hjá mér...því e-m fábjána datt í hug að skipta um glugga og setja upp svalir um hávetur!!! og af því að þeir voru að skipta um gluggana þurfti að taka ofninn inní eldhúsi og þar sem ofninn inni hjá mér er tengdur við hann þá virkar minn ekki....þannig að ég þarf að sofa í joggingbuxum, peysu og sokkum á hverri nóttu!!!!!! og svo eru þessir pólsku verkamenn sem er að vinna í þessu fokkin hálfvitar...ég meina kommon, hvaða fífli dettur í hug að blasta útvarpið klukkan hálfníu á morgnana beint fyrir utan svefnherbergið hjá fólki!!!!! ég flippaði út um daginn...vaknaði við e-ð fokkinn r'n'b ógeð klukkan hálfníu....og þar sem ég þurfti ekki að mæta í skólann fyrren klukkan tólf þá getiði ímyndað ykkur hvað ég varð pirruð!!!! ég rauk upp og opnaði gluggann og öskraði á helvítis fíflið og sagði honum að hunskast til að slökkva á þessu ógeði, því ég væri að reyna að sofa...og svo sagði ég honum vinsamlegast að nota iPod ef að hann ætlaði sér að hlusta á tónlist meðan að hann væri að vinna!!!!!fokkin fæðingarhálfviti!!!!!! svo er ég búin að ákveða að færa mig yfir í listasögu næsta haust.....þótt ég geti ekki teiknað þýðir það ekki að ég geti ekki fundið mér e-ð að gera í listaheiminum....draumurinn er að fá vinnu á MoMa í New York ( Museum of Modern art, fyrir þá sem ekki vita hvað MoMa er;)) og búa í penthouse íbúð með útsýni yfir central park!!!!! ok ég veit, ég þarf að hoppa niður af bleika skýinu sem ég er búin að vera á...en maður má alltaf láta sig dreyma!!!!!!;) og svo að aðaldæminu...það eru bara 31 dagur í að komi heim!!!! jibbí;) já, ég er byrjuð að telja niður!!!! næstum þrjár vikur heima á kalda og fátæka íslandi!!!!;) vona bara að icelandexpress verði ekki farið á hausinn áður en ég fer heim....borgaði fokkinn 50þús kall fyrir einn flugmiða...djöfulsins rugl....það liggur við að maður þurfi að selja annað nýrað úr sér á svörtum markaði til að komast til eða frá íslandi!!!!! reyndar er ég ennþá með bæði nýrun á sínum stað...bara svona til að hafa það á hreinu!!;) en núna ætla ég að hætta....mér er orðið svo kalt á puttunum að ég get ekki skrifað meira...... bleeeeeeeeeeees
17. nóvember 2008 klukkan 23:23
Steinunn Björk Bragadóttir 3 athugasemdir
bara svo ég haldi nú áfram að röfla, virðist ekki geta gert neitt annað þessa dagana....en mig langar bara að vita hvernig í andskotanum Icelandair getur rökstutt það að flugmiði fram og til baka frá Kaupmannahöfn kosti fokkin 70þús kall!!!!!! halló!!! ok, ég veit að það er fjármálakreppa í gangi, en nú segi ég stopp!!!! og ætlast þeir til að fá e-a viðskiptavini....ég get ekki ímyndað mér að það séu margir sem séu tilbúnir til að punga út fyrir fargjaldi sem í rauninni ætti að vera upphæðin á flugmiða til New York eða Orlando...kommon 70þús kall!!!!! sem fyrrverandi starfsmaður dótturfyrirtækis Icelandair, þá skammast ég mín fyrir það að hafa nokkurn tímann unnið fyrir þetta sora fyrirtæki.....og hvað er málið með að koma upp nýju farrými...sem á að vera millivegurinn á sagaclass og venjulegu farrými....eins og flugmiði á venjulegu farrými sé ekki nógu fokkin dýr...að þeir þurfi að koma með nýtt farrými sem er dýrara en það...sem þýðir að það komast færri á almennt farrými......mér finnst þetta bara vera eitt mesta rugl sem ég hef á ævi minni vitað um....og vil bara koma því á framfæri að ég er hér með ekki lengur viðskiptavinur icelandair...og mun ekki verða það í framtíðinni, nema af illri nauðsyn...þá held ég nú að icelandexpress sé skömminni skárra...þrátt fyrir að ég hafi talað illa um það e-n tímann...en ég er frekar til í að borga 500 kall fyrir bragðvonda samloku og fá flugmiðann minn á 40þús kall í staðinn fyrir að fá bragðvonda kalda skinku frítt en þurfa að borga 70þús kall fyrir það!!!! held að bragðvonda kalda skinkan með kartöflusalati sé ekki 30þús króna virði!!!!! fokkin rugl!!!!!
05. október 2008 klukkan 21:04
Steinunn Björk Bragadóttir 8 athugasemdir
ok..var á visi.is rétt áðan, bara svona af því að ég hef ekkert annað að gera en að vera á íslenskum fréttaheimasíðum!!, en þar rakst ég á eina 'frétt', og ég legg áherslu á gæsalappirnar!! fyrirsögnin er semsagt 'Lesbíurnar vilja ættleiða' og fjallar sú 'frétt' um það að Lindsey Lohan og kærastan hennar hafi hugleitt að ættleiða barn. En það sem vakti athygli mína var orðalagið í fyrirsögninni...'Lesbíurnar vilja ættleiða'...það er eins og Lindsey Lohan og kærastan hennar séu einu lesbíurnar í öllum heiminum...sem er náttúrulega alrangt, þar sem ég þekki nú nokkra samkynhneigða kvenmenn sem eru eflaust sammála mér um heimskulegt orðalag 'fréttamanna' visir.is....en annars er nú ekki hægt að búast við öðru hjá eins miklu sora fréttamiðli eins og visir.is er...veit ekki hvar þetta fólk lærði blaðamennsku....því fyrir utan þessa afskaplega óviðeigandi fyrirsögn þá sé ekki hvað er svona merkilegt við það að Lindsey Lohan og kærastan hennar vilji ættleiða barn, hefði nú mátt halda að það væru langtímamarkmið flestra para að eignast börn, hvernig sem þau fara að því....og svo er ég líka alveg viss um að ef væri verið að ræða um e-ð gagnkynhneigt par, þá yrði fyrirsögnin örugglega ekki ' gagnkynhneigða parið vill ættleiða barn'.....nei örugglega ekki, því það væri ekki eins krassandi...það er ekkert merkilegt við gagnkynhneigt par sem vill eignast barn...en þegar maður er farin að tala um samkynhneigt par þá virðist það vera allt annað...ég held að 'fréttamenn' visir.is ættu kannski að fara á eins og eitt eða tvö námskeið í blaðamennsku og læra hvernig á að skrifa almennilegar fyrirsagnir og almennilegar fréttir....takk fyrir.....
04. október 2008 klukkan 20:26
Steinunn Björk Bragadóttir Engin athugasemd
ég sá e-a auglýsingu á mbl.is um að það væri verið að opna nýja verslunarmiðstöð e-s staðar við Vesturlandsveginn, eflaust í grafarholtinu, annars er ég ekki viss um hvar korputorg er en það skiptir svo sem ekki öllu máli...en það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég sá þessa auglýsingu var bjartsýnin í þessum ágætu verslunarmönnum að opna nýja verslunarmiðstöð í miðri fjármálakreppunni sem er að setja heilu heimilin og bankana á hausinn...gat ekki ímyndað mér að það væru margir sem myndu skella sér í brjálaðar verslunarferðir í augnablikinu.....en nei, þar hafði ég rangt fyrir mér....las nefnilega á mbl.is áðan að þessi ágæta verslunarmiðstöð opnaði í morgun klukkan átta....átta takk fyrir....og áður en hún opnaði hefði fólk verið farið að bíða fyrir utan til að komast inn og þá sérstaklega í Toys'r'us búðina.....halló!!!!!! er þörfin fyrir því að kaupa nýja latabæjarbúninginn eða nýjasta superman hlaupahjólið svona mikil að fólk er tilbúið til að rífa sig upp fyrir allar aldir til að standa í biðröð til að komast inní verslunarmiðstöð!!!!!! ég sem hélt að fólk hefði ekki lengur efni á því að greiða skuldirnar sínar eða kaupa bensín á bílinn sinn....en nei, það hefur efni á því að kaupa drasl leikföng og sófasett í nýju íbúðina sína sem það hefur svo ekki efni á að borga af!!!!!! ok, ég er ekki að segja að maður eigi að hundsa börnin sín og neita þeim um leikföng...en mér finnst svolítið of mikið að vera komin í biðröð fyrir klukkan átta að laugardagsmorgni bara til að kaupa einn spiderman kall!!!!! mér finnst að þessir kaupóðu vitleysingar eigi frekar að gefa mér þennan pening sem þeir eyddu í plastdót og gardínur í dag til að ég komist heim um jólin!!!! þá væru þeir búnir að gera góðverk dagsins!!!! en já, talandi um það...er að pæla í að stofna til landssöfnunar...'styrkið fátækan námsmann til að geta verið með fjölskyldu og vinum á jólunum í miðri fjármálakreppu dauðans'...gott nafn er það ekki?!?!?;) en fyrir utan óvissu um hvar ég eyði jólunum í ár, þá er allt gott að frétta héðan frá danmörku....nema það að það er orðið skítkalt hérna og e-r karlpungar eru búnir að taka ofninn í eldhúsinu í burtu og aftengja ofninn inní herberginu mínu, því e-m fábjána datt í hug að setja upp svalir í öllum íbúðunum hérna...ok, mér finnst svo sem svalir alveg fínar, en ég hef svosem ekkert svakalega mikla þörf fyrir að hafa svalir...sérstaklega ekki ef það þýðir að ég get ekki hitað upp íbúðina mína í marga mánuði á meðan á vinnunni stendur....hefði kannski verið skynsamlegra að gera þetta í sumar...en nei, byggingarvinnumenn virðast vera jafn heimskir hérna í danmörku og á íslandi.....sjitt og núna er ég búin að vera að krókna úr fokkin kulda í viku...sef í sokkum, joggingbuxum og hettupeysu...svakatöff!!!! og mér er samt kalt!!! og svo til að toppa allt saman þá hækkar leigan hjá mér útaf e-m svölum sem ég vil ekki einu sinni hafa!!!! þannig eins og staðan er núna þá hækkaði leigan hjá mér en þægindin minnkuðu um helming, því að það er ekki nóg að ég sé að krókna úr kulda því e-r fábjánar tóku ofnana í húsinu, þá eru þessir verkamenn sem eru að setja upp þessar svalir háværustu menn í veröldinni og þegar maður fær tækifæri til þess að sofa aðeins lengur en til klukkan 7 á morgnana þá getur maður það ekki því e-r sveittir pólskir verkamenn eru að hnýsast fyrir utan gluggann hjá manni, öskrandi og æpandi e-n fjandann á pólsku!!!!! er ekki að fíla þetta!!!! en ekki get ég komið heim til íslands aftur...á engan fokkin pening til þess!!!!!! en samt getur fólk staðið í biðröð fyrir utan leikfangabúðir klukkan átta á morgnana!!! fokkin skítur!!!!!! en svona til að tala um e-ð aðeins skemmtilegra...fór í svaka partý skólanum í gær.....oktuborgfest...ekki oktoberfest heldur okTUBORGfest....fannst þetta ansi skemmtilegur orðaleikur;) en þetta var svaka partý..allir sem voru að vinna á barnum og svona voru klæddir upp í svona ekta þýska búninga, stelpuranar með svona princess Leia snúða í hárinu...sem er víst kallað 'frikadeller' hérna í danmörku, fannst það mjög fyndið....svo var svaka dansgólf og dj og læti....það var einmitt dansað ansi mikið þegar leið á kvöldið...tók nokkrar myndir af því sem ég á eftir að setja inná netið!!!! en núna held ég að það sé komin tími á að læra...er að fara í þrjú próf í næstu viku....fokk!!!! en þangað til næst bleeeeeeeeeeeeeees
04. október 2008 klukkan 12:21
Steinunn Björk Bragadóttir 2 athugasemdir
Ég komst að því í dag að ég er ekki eins góð í dönsku og ég hélt ég væri orðin....vorum í smá pásu í tíma, og við stóðum nokkur og vorum að tala saman...um ekkert merkilegt svosem, en e-n veginn komst það til tals að hæsta fjall Danmerkur er einungis 163 metrar, eða e-ð álika, en að hæsti tindur Íslands væri e-ð um 2110 metra, man ekki alveg nákvæmlega hversu hár....en svo ætlaði ég að vera voða sniðug og segja frá því þegar ég var í Austurríki fyrir 7 árum og að þar hafi maður getað staðið úti á peysunni í 2300 metra hæð en á hæsta tindi Íslands þyrfti maður klifurgræjur og svaka útbúnað til að komast þangað upp...það byrjaði nú þannig að ég mundi ekki hvernig maður segir Austurríki á dönsku, svo var ég ekki alveg viss hvernig maður ætti að segja Alparnir á dönsku...og svo endaði þetta allt með því að ég hafði sko ekki hugmynd um hvernig ætti að segja klifurgræjur á dönsku...þannig að sagan varð ekkert rosalega spennandi... en aftur á móti skemmtu allir sé voðalega vel yfir því hvað ég væri nú samt dugleg að reyna að segja þessa sögu á dönsku....þannig að það var mikið hlegið að mér, en ekkert af blessuðu sögunni minni!!!!!;) mér leið pínu kjánalega í svona 10 mín eftirá;) en svo var ég aftur næstum því búin að kaupa mér flugmiða heim til íslands í dag....er nefnilega í einum kúrs um franska sögu...hann á að vera kenndur eingöngu á frönsku, en þar sem kennarinn er svo ligeglad e-ð þá talar hann nú yfirleitt dönsku í tímum, þótt við lesum alla textanna á frönsku....en svo í seinni hlutanum á tímanum, þá kemur annar kennari...sem er nota bene frönsk, þannig að hún talar ekkert nema frönsku og maður skilur ekki rassgat sem hún segir því hún talar svo hratt....og ekki nóg með það, þá er hún bara að tala um Evrópusambandið..á frönsku...og þar sem ég veit ekki neitt um Evrópusambandið og gæti eiginlega ekki verið meira sama um það, þá sit ég alltaf eins og fábjáni í þennan klukkutíma sem hún stendur þarna og blaðrar e-n fjandann um Evópusambandið og e-r hinar og þessar nefndir og ráð sem heyra undir það og blablabla.....mér leið samt aðeins betur þegar ég komst að því að það er eiginlega enginn sem veit hvað í fjandanum hún er að tala um, því þótt að Danir séu í Evrópusambandinu, þá virðist öllum vera eiginlega alveg sama hvað er í gangi þar og flestir vilja eiginlega ekkert með það hafa!!!!! en franska beyglan fór nú samt alveg yfir strikið í tímanum í dag...við áttum nefnilega að vera búin að lesa e-n texta fyrir tímann í dag, sem ég var nú svosem búin að líta á, en skildi svo sem ekkert um hvað hann fjallaði...svo byrjar tíminn og hún byrjar bara að tala um e-ð allt annað sem enginn hafði hugmynd um hvað var og hafði ekki staðið í textanum, og svo varð hún bara þvílíkt hneyksluð og pirruð yfir því að enginn vissi um hvað hún var að tala og að enginn gæti svarað því sem hún var að spurja um....hún Signe, sem er ein í bekknum, kom nú með mjög gott komment eftir tímann...að þetta hefði verið eins og að kennarinn hefði spurt okkur um hvernig barnæskan hennar hefði verið og hefði svo orðið geðveikt hneyksluð yfir því að við hefðum ekki vitað hvað hafði verið uppáhaldsleikfangið hennar og hvað gatan héti sem hún ólst upp við.....og þetta var eiginlega alveg eins, því það vissi enginn um hvern fjandann franska gellan var að tala um!!!!!! þannig að núna er ég í mjög pirruðu skapi og það lá við að ég hefði bara hætt í skólanum í dag!!!! en svo komst ég að því að það er eiginlega alltof mikið af sætum strákum í skólanum og svo er fredagsbarinn svo fjandi skemmtilegur að ég tími því eiginlega ekki;) þannig að ég verð víst að þrauka í tvær vikur í viðbót og vonast til að ég komist í gegnum þennan Evrópusambands áfanga.....sem ég reyndar er ekki alveg að skilja hver tilgangurinn er með!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! en já, núna er ég búin að hella úr skálum reiði minnar í garð frönsku gellunar!!!! nei, eitt einn....þessi beygla er næstum því búin að eyðileggja áhuga minn á Frakklandi og frönsku bara því hún er svo mikil tík!!!!! ég veit að maður á ekki að tala svona um kennarana sína, en ég get bara ekki annað...hún fer alveg í mínar fínustu!!!!!!! en núna ætla ég að fara að lesa um franska sögu...partinn sem hinn kennarinn er að kenna....mér líkar vel við hann...hann er pínu skrýtinn, það kemur alltaf svona frekar skrýtið fliss á eftir öllum setningum sem hann segir...er samt fyndinn...hann fær mig alla vega til að langa að lesa heimavinnunna mína... þannig að þangað til næst bleeeeeeees
25. september 2008 klukkan 15:27
Steinunn Björk Bragadóttir 2 athugasemdir